Körfuboltamótið er um helgina, suður á eftir

Hæ,hæ

Smá blogg.

Er að klára vinnudaginn og svo leggjum við í hann í borgina miklu. Gistum hjá pabba og Margréti í kvöld og svo verður vaknað snemma í fyrramáli til að halda inní Keflavík. Tindastóll á sinn fyrsta leik kl. 9:30 við ætlum að gista í Heiðarskóla á laugardaginn. Er búin að prenta út kort af ja.is og vonandi rötum við eins og ávalt kannski fæ ég garmínu lánaða hjá pabba og þá komust við á leiðarenda. Þetta verður svakalega skemmtilegt. Það er nóg fyrir krakkana. Jæja hafið það allra best um helgina.

kveðja! Þorgerður og Sigrún Þóra (sindri er farinn til pabba síns)

Við eigum 3 leiki á laugardag fyrsti leikur er kl 09:30 við KR 8 og annar leikur er strax á eftir eða kl 10:00 við Njarðvík 11, þriðji leikurinn er svo við Keflavík 16 kl 11:30.
Við eigum svo Bíóferð kl 16:00 á laugardag. síðan er kvöldmatur og svo kvöldvaka.
 
Á sunnudag eru svo 2 leikir og við byrjum við kl 10:00 á móti Grindavík 4 og svo er seinni leikurinn kl 12:30 við Fjölni 8
Við spilum alla leikina í Heiðarskóla.
 
Verðlaunaafhending og mótsslit eru kl 14:00 á sunnudag.
Ég vill benda aftur á mótssíðuna http://samkaupsmot.blog.is/blog/samkaupsmot/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband