13.5.2009 | 22:31
18.stiga hiti í dag það er ennþá mai!!!
Já hitinn fór í 18.gráður í dag.
Ég er búin að sitja hér við tölvuna í allt kvöld og var mín að setja inn nýjar myndir inná bloggið á nú samt eftir að snúa þeim eitthvað.
Allt gott að frétta af okkur. Ótruglegt að sjá út, það er ennþá dagur og erfitt að ná stúlkunni inn á kvöldin þau voru hér úti í brekku nokkrir krakkar í eltingaleik..gaman af því. Spáð góðu veðri fram yfir helgi.. Sindri á að fara til pabba síns um helgina og ætla ég með Sigrúnu á sundmót á Hvammstanga á laugardag og verðum við komin fyrir Eurovison á laugardagskvöldið, við ætlum svo að fara í hofsós til pabba og ætlum við að skella okkur á veiðar á honum Skrúð, Skrúður er trilla og ætlum við á sjóstöng og veiða í soðið eða á grillið.
Nú er komin tími til að hengja úr vélinni og hengja út, og setja aftur i vélina og svo er komin háttatími.
Ég bíð góða nótt.
Þorgerður, Sigrún Þóra og Sindri Snær
Athugasemdir
Það eru aldeilis sviptingar í veðrinu þessa síðustu daga hér á Króknum. Gangi ykkur vel á Hvammstanga.
Sigurjón Þórðarson, 13.5.2009 kl. 22:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.