27.3.2009 | 11:36
Stórt knús og margir kossar í gær!!!!!!!!!!!
Hæ, hæ
Það var vel tekið á móti mér í gærmorgun frá Sigrúnu Þóru hún svaf heima með afa sínum knúsaði og kyssti mig sagði við mig ég elska þig og gott að fá þig heim. Sindri Snær kom í gær morgun með pabba sínum og fékk að vera hjá ömmu Auði og Óla afa til 15 í gær, þegar ég kom hljóp Sindri í fangið mitt og sagði mamma er komin, það ljómaði svo á honum og hann talaði svo mikið, var að segja mér eitthvað merkilegt og kyssti mig.
Þegar við fórum í leikskólan hópuðust allir krakkarnir í gluggann og sögðu sindri er að koma..ekki slæmt að koma í þennan leikskóla og vel tekið á móti honum þegar inná deildina kom.
Það er að koma helgi og ætlum við að taka til heima fyrir og hafa það bara huggó.
Góða helgi!
Þorgerður , Sigrún Þóra og Sindri Snær
Athugasemdir
Æiii já það er alltaf svo gott að fá hana mömmu til sína aftur. Endilega njótið helgarinnar, þið eigið það svo sannalega skilið. Knús og kósýheit frá okkur á Víðivanginum.
Ásta Kristín (IP-tala skráð) 27.3.2009 kl. 12:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.