23.1.2009 | 13:52
Helgi framundan...
Hæ,hæ
Jæja nú er bara aftur komin helgi. Sindri átti að fara til pabba síns en verður heima þessa helgina v/veðurs. Ég er nú samt ekki alveg komin í gírinn í ræktinni aftur og stefan að gera eitthvað í þeim málum 2.feb þá verður Dóra vinkona komin heim á krók aftur eftir útlegð f/vestan. Þá verður ekkert elsku mamma það verður sko púlað í ræktinni og ætlum við að vera flottar í sumar.
Af því að það er nú bóndadagur í dag þá ætla ég að bjóða Jóni Bróðir í mat í kvöld. Svo verður væntanlega tekið til og þrifið um helgina og einhver afslöppun líka.
Jæja ekki í stuði að blogga einhver lægð í mér.
kveðja!
Þorgerður
Athugasemdir
Góða helgi krúttið mitt. Þetta verður bikinisumar eftir allar ferðirnar í ræktina :) he he he he bara besta mál... ekki satt :)
Kristín Guðbjörg Snæland, 24.1.2009 kl. 18:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.