15.12.2008 | 14:03
Er í losti að séu bara 9 dagar til jóla!!!!!!!!!!!!!!!!
Hæ,hæ
Já held að ég sé enn í Losti að hafa fattað það í morgun að væri nú bara 9. dagar til jóla en þetta er nú allt að spella samt saman jólagjafa flóðið. Ég skrapp inná Akureyri í gær og gat auðvitað eytt smá það voru nokkrar búðir lokaðar en það er bara þeirra missir að hafa misst af mér..he,he. Sindri Snær kom svo með mér yfir á krók hann var hjá pabba sínum um helgina og Sigrún fékk að vera svona afahelgi. Og ég hafði það bara huggó á föstudeginum fór ég í vinkonu rúnt um bæinn og endaði í mat hjá vinkonu . takk fyrir mig og takk fyrir góðu kökurnar. Ég nuddaði svo eina konu og hlammaði mér fyrir framan dvd um kvöldið. Á Laugardeginum var vaknað um 10 og skellti ég mér í ræktina og í einn ljósatíma og svo nuddaði ég tvær um daginn og endaði daginn að föndra hjá vinafólki mínu um kvöldið, svaf aðeins út á sunnudeginum og tók á móti sigrúnu og græjaði hana í afmæli og fór hún svo á jólatónleika hjá Ásthildi og voru þær í góðum gír þegar ég kom í gærkveldi.
læt þetta duga í bili.
kveðja!
Þorgerður, Sigrún Þóra og Sindri Snær
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.