12.12.2008 | 10:53
framhald síðan í gær
Dagur 5. kom smá miði með pakkanum. Jæja þá er komið að síðasta degi vinavikunnar og ljóst að sendingarnar verða þar með ekki fleiri að sinni. Þess vegna á kvað ég að senda þér núna ljós sem ekki klárast eins og kertin til þess að nú njótir ljóssins áfram þrátt fyrir að kertin klárist. En auðvitað fylgja líka aukakerti í hin ljósin og í pokanum fékk ég 35 ljósa seríu.
Jæja nú er ég að fara í jólte og jólasmákökur hjá Sindra í leikskólanum núna kl. 9.30 og ætla ég að bjóða Ömmu Auði með. Svo er það ein önnur helgin og Sindri fer til pabba síns í dag og Sigrún til afa síns í hofsós svo ég verð ein í kotinu það verður klárað að gera jólagjafirnar og ætla að nudda líka. Ef þið hafið áhuga að koma í smá slökun-nudd þá er ykkur velkomið að hafa samband við mig.
Ég er sem sagt komin aftur og Sindri fór heim með Ömmu Auði og verður þar þangað til Ægir kemur og sækir i dag.
nú ætla ég að fara að vinna.
kveðja! Þorgerður, Sigrún Þóra og Sindri Snær
Athugasemdir
Já, já, já, já, já, já.... ég vil endilega koma í nudd!!! Hringdu í mig með fyrirvara og við finnum tíma sem báðum hentar :)
Kristín Guðbjörg Snæland, 12.12.2008 kl. 13:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.