23.9.2008 | 11:56
Andlaus eitthvað þessa daganna
Hæ, hæ
Veit ekki hvað er að ske það er nú samt alveg nóg að gera.
Sigrún Þóra er að æfa sund 3x í viku og svo ætlar hún að skella sér líka í körfubolta sem er líka 3x í viku. Það verður nóg að gera hjá henni.
Sindri Snær eitthvað tregur að fara í leikskólann núna á morgnann vill bara vera heima hjá mömmu sinni en þetta tekst nú samt allt að koma honum í bílinn. Alltaf hægt að semja við hann. Þetta tekur á fyrir hann er nú bara 2.ára.
Ég kláraði að mála skápinn um helgina og við Sigrún höfðum það bara huggó, fórum í sund og í mat til mömmu tókum dvd á laugardagskvöldið og smá nammi. Það var þveginn þvottur og tekið til..bara þetta típiska helgarstúss. Fór í rækina í gær í body pump svitnaði vel, pabbi passaði. Svo fóru allir snemma að sofa.
Við vöknuðum i morgun og allir komnir á sína staði í morgun.
jæja ég ætla að klára að gera smávegis áður en ég fer í mat.
kveðja!
Þorgerður, Sigrún Þóra og Sindri Snær
Athugasemdir
Hlakka til að sjá skápinn tilbúinn :)
Kristín Guðbjörg Snæland, 24.9.2008 kl. 10:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.