Fór í ræktina í hádeginu.

Hæ hæ

 Nú maður búin að kaupa sér kort í þreksport og fara núna tvo daga í hádeginu. Vá það er rosalega góð tilfinning  að púla og mæta svo aftur í vinnuna. Í dag fór ég á hjól..ekki frá sögufærandi þá er rassinn minn frekar aumur eftir hjólaferðina. En ég setti nú handklæðið á sætið til að geta hjólað annars er það hart.  Svo var skyr boost í hádeigismat. vanilluskyr,frosin berjablanda,smá ananas bitar og smá léttmjólk úti.....hmmmmmmmmmmmmmmm rosa gott. Sigrún min kom í þreksport þegar ég var akkurat að búin og fórum í vinnuna þar fékk hún skyr. Svo hjólaði mín heim til vinar síns í gamla bæinn og þau ætluðu svo að verða samferða á sundnámskeiðið.

Jæja nú ætla ég að halda áfram í vinnunni

heyrumst síðar.

Þorgerður


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábært hjá þér!!!

Maður ætti að taka þig til fyrirmyndar og byrja aðeins að hreyfa sig!!

Guðbjörg (IP-tala skráð) 2.9.2008 kl. 20:05

2 Smámynd: Linda litla

Vá, við Kormákur fórum í hjólaferð í gær og ég hélt hreinlega að hann myndi sprengja mig, ég varð lafmóð og í svitabaði. Þetta tók vel á, en við ætlum að fara að hjóla saman þangað til það fer að kólna og snjóa.

Linda litla, 3.9.2008 kl. 08:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband