Reykjavík um helgina.

Hæ, hæ frekar lítið að gera í vinnunni svo ég datt óvart hér inn og ætla að reyna að blogga eitthvað.

Ég ætla sem sagt að skreppa í borgina um helgina og skilja Sindra eftir hjá pabba sínum og systur sinni Auði þau ætla að skreppa hér yfir á krókinn og eyða helginni hjá Auði og Óla.  Sigrún Þóra ætlar að koma með suður og gista eina nótt hjá pabba sínum og ásu. Ég fer eitthvað á flæking og hitti vinkonur og skreppi kannski á útsölur.

Fólk er í óðaönn að taka niður jólaskraut eftir jólin. Ég ætlaði nú að vera svo dugleg í gærkveldi en sofnaði með Sindra kl.21 og vaknaði að fögrum blund kl eitt í nótt.  Sigrún svaf nefnilega hjá ömmu sinni.

jæja ég hef ekkert að segja bið að heilsa í bili

kveðja Þorgerður


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband