Hinn mikli miðvikudagur

hæ,hæ hélduð þið að ég væri búin að yfirgefa bloggið, nei nei ég er búin að vera að sækja um vinnur og  búa til atvinnuumsókn voða voða gaman.

Erum að fá mömmu og Arnísi vinkonu mína í kvöld það verður gaman að fá þær, Sigrún er orðin voða spennt að fá ömmu sína í heimsókn og spyr oft hvort að amma sín er að koma. Sigrún er alltaf  hjálpleg með sindra og brútus.  Sindri situr hérna í fagnginu á mér og er að kjafta í gsm símann minn......rosagaman og svo hlær hann he,he,he . Sindri er  orðin rosalega klár með að labba út um allt en dettur aðeins.  Nú komst hann í feitt hann náði símaskránni sem það er best að lána honum eitthvað annað....Það eru fjölgun á tönnum hjá honum bara rosa flottur strákur.  Við erum með svala hurðina opna og Sindri fer út til skiptis í að drullu malla það finnst honum gaman. Brútus er hér á harðahlaupum út í grasinu og leika þeir stundum bræðurnir. Ég ætla svo að fara að þrífa og gera fínt áður en þær koma.  Svo ætla ég að sækja þær í kvöld, það verður skemmtilegt að vita hvort mér tekst að rata út á flugvöll.

Jæja ég ætla sem sagt að fara að þrífa og taka til við bara heyrumst síðar. 

kveðja frá baunalandi

Þorgerður, Ægir og börn 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ hæ hafið það gott og bið að heilsa ömmunni og njótið að vera saman

kv Þorbjörg

Þorbjörg (IP-tala skráð) 24.8.2007 kl. 08:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband